Rokkland

Atli Örvarsson

Atli Örvarsson sagði skilið við hljómsveitalífið á Íslandi fyrir rúmum 30 árum hætti í Sálinni hans Jóns Míns sem þá var vinsælasta hljómsveit landsins og fór til Ameríku í nám í hinum virta Berklee tónlistarháskóla með höfuðáherslu á kvikmyndatónlist. Í beinu framhaldi kláraði hann mastersnám í North Carolina School of Arts.

Síðan þá hefur hann samið og útsett tónlist fyrir kvikmyndir og sjónvarpsþætti sem við þekkjum flest og Atli Örvarsson er í dag eitt eftirsóttasta kvikmyndatónskáld í heims. Hann hefur hlotið allskyns viðurkenningar - verið tilnefndur til Grammy verðlauna og fyrir tveimur árum hlaut hann Bafta verðlaun fyrir tónlistina í sjónvarpsþáttunum Silo sem sýndir eru á Apple TV+.

Atli er líka einn af sigurvegurum Músíktilrauna sigraði 17 ára með Stuðkompaníinu sem hann var ásamt Kalla bróður sínum og fleiri strákum frá Akureyri.

Lukkan hefur verið í liði með Atla honum hefur gengið alveg ótrúlega vel, en hvað er þetta mikið lukka og hvað mikið af allt öðru?

Við ætlum kynnast Atla Örvarssyni í Rokklandi í dag hann segir sjálfur sögu sína en hann verður á sviðinu í Hofi á Akureyri á skírdag með SinfoniuNord stjórnar hljómsveitinni og músíkin er öll eftir hann.

Birt

22. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Þættir

,