Rokkland

KK í 60 ár

Tónlistarmaðurinn KK - Kristján Kristjánsson ætlar fagna 70 árum á jörðinni með afmælistónleikum í Háskólabíó 8. maí.

Þegar hann varð 60 ára fyrir áratug heimsótti hann Rokkland í std. 12 í útvarpshúsið og ræddi við umsjónarmann um líf og störf Kristjáns.

KK talaði um æskuna í Kaliforníu, pabbann sem týndist í Vietnam, um mömmu sína og systkini, um gítarana sína, unglingsárin á Íslandi, Bítlana, JJ Cale, Kris á Frakkastígnum, um Vegbúann, leikhúsið, útvarpið, Magga Eiríks, Bubba Morthens, eiginkonuna frá Akranesi, um óttann og margt fleira. Hann var með einn af gíturunum sínum með sér og spilaði nokkur lög eftir sig og aðra.

Þessi þáttur er endurfluttur frá 2016.

Birt

22. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Þættir

,