Rokkland

Á ferð um rætur rytmans í Nashville - Clarksdale og Nashville með Gulla og Finnboga

Í Rokklandi vikunnar förum við í ferðalag rótum rythmans með tveimur gömlum vinum og tónlistaráhugamönnum sem hafa safnað músík plötum og diskum síðan þeir voru börn eiga óheyrilegt magn af plötum hafa klikkaðan áhuga á músík og annar þeirra á græjum lika hljómflutningstækjum og báðir safna þeir fyrst og fremst geisladiskum segja það besta formatið og sándið.

Þetta eru þeir Finnbogi Marinósson og Gunnlaugur Sigfússon sem eiga það líka sameiginlegt hafa gert þætti fyrir Rás 2. Gulli gerði 4 þætti um sögu Stax útgáfunnar í Memphis í fyrra og var þar áður í Plötuskápnum á föstudagskvöldum. Finnbogi leysti Gest Einar jónasson stundum af á sínum tíma með Hvíta máva.

Þeir Finnbogi og Gulli fóru í ferð til USA músíkferð Rótum rytmans. Þeir ferðuðust gegnum 12 af ríkjum bandaríkjunum - keyrðu c.a. 5800 km á 20 dögum og viðkomustaðir voru:

Suður Karólína - Georgía - Norður Karólina - Alabama - Tennessee - Mississippi - Kentucky - Ohio - Michigan - Illinois - Wisconsin - Minnesota.

Þeir Gulli og Finnbogi segja frá í Rokklandi -

Frumflutt

1. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Rokkland

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í áratugi.

Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Þættir

,