Stríð og friður
Það er friðarvika í Reykjavík þessa dagana – 40 ár frá fundi Reagan og Gorbachov í Reykjavík - Friðarsúlan í Viðey var tendruð á föstudaginn á afmælisdegi Lennons og stríð og friður…
Rokkland vikunnar er endurtekið frá 8. júní 2003 og í brennidepli er hljómsveitin Radiohead og platan Hail to the thief sem kom út 9. júní 2003.
Radiohead tilkynnti núna í vikunni að það væri tónleikaferð framundan um nokkur Evrópulönd.

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson