Rokkland

Björgvin Halldórsson kvaddur

Rokkland dagsins er dálítið sérstakt vegna þess þar verður útvarpað styttri útgáfu af útför Björgvin Halldórssonar sem var mikil tónlistarveisla eins og við var búast.

Björgvin (Bo Halldorson var lagður til hinstu hvílu á þriðjudaginn síðasta og mörg hundruð manns fylgdu honum síðustu metrana í Hallgrímskirkju. SÝN um beina útsendingu frá útförinni á Visi og við á Rás 2 fengum leyfi hjá Sýn og fjölskyldu Björgvins til útvarpa hluta af útöförinni í Rokklandi í dag.

Þau sem sungu í útförinni voru landslið og vinir Börgvins: Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Páll Rósinkranz, mugison, Daníel Ágúst, Ragnheiður Gröndal og Sigríður Thorlacius– Fóstbræður og svo börnin hans 2 af þremur Krummi Bjorgvinsson og Svala Björgvins. Andrea Ingvarsdottir söng með þeim. Óskar Einarsson spilaði á píanó og var tónlistarstjóri og Guðmundur Pétursson spilaði á gítar. Jakob Frímann talar og líka Ari Eldjárn. Prestur var Guðni Már Harðarsonsem stjórnaði öllu saman.

Í lok þáttar eru svo brot frá nokkrum heimsóknum Björgvins í Rokkland gegnum tíðina 🎵

Birt

3. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Þættir

,