Rokkland

Springsteen og Trump, Bono og Joe Rogan, Suzanne Vega, Gulli og Finnbogi í Chicago og hjá Prince

Bruce Springsteen og Donald Trump koma aðeins við sögu í Rokklandi vikunnar - en forsetinn sagði á Truth Social um daginn hann hefði aldrei verið hrifinn af Bruce eða hans músík og hans róttæku vinstri pólitík. Hann væri hæfileikalaus ýtinn asni sem hafi stutt Crooked Joe Biden þann heilalausa hálfvita versta forseta sögunnar. Við skoðum þetta aðeins og hvað varð til þess forsetinn skrifaði svona um Bruce sem hann hélt uppá í eina tíð amk.

Svo er það U2 - Bono og Joe Rogan Bono heimsótti Joe Rogan á dögunum og sumir segja Rogan hafi „grillað“ lágvaxna söngvarann frá Dublin. U2 hlaut á dögunum heiðursverðlaun Ivor Novello og við það tilefni spiluðu allir 4 liðsmenn U2 opinberlega saman í fyrsta sinn í 5 ár. Það er U2 plata á leiðinni.

Susanne Vega var senda frá sér nýja plötu sem við skoðum aðeins en fyrri hlutinn fer í restina af ferðasögu Þeirra Gulla og Finnboga um Bandaríkin. Í síðasta þætti sem hægt er hlusta á á ruv.is og í RÚV spilaranum (appinu) voru þeir í Memphis og Nashville, heimsóttu Elvis, Sun, Stax ofl.

Þeir enduðu sitt langa ferðalag (5800 km) í Chicago og Minneapolis Þar sem þeir heimsóttu blús-útgáfuna Chess Records og heimavöll Prince Paisley park.

Frumflutt

8. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Rokkland

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í áratugi.

Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Þættir

,