Rokkland

Brian Wilson - Beach Boys og Pet Sounds

Rokkland vikunnar fjallar um Brian Wilson leiðtoga Kaliforníu-hljómsveitarinnar Beach Boys og meistaraverk hans og sveitarinnar, plötuna Pet Sounds, en Brian Wilson féll frá á dögunum.

Brian Wilson er einn af stærstu meisturum popp og rokksögunnar. Hann er .t.d. maðurinn sem Paul McCartney segir séní, og Gunni Þórðar segir það líka. Paul hefur sagt Brian Wilson hafi haft áhrif á sig bæði sem lagasmið og bassaleikara.

Áhrif Pet Sounds plötunnar sem er ellefta breiðskífa Beach Boys leyna sér ekki í rokksögunni og poppfræðingar segja það megi greina þau t.d. hjá sveitum og listamönnum eins og Fleet foxes, Of Montreal, Neutral Milk Hotel, Apples in Stereo, R.E.M. meira segja My Bloody Valentine, Animal Collective, Radiohead og Bítlunum. Allt eru þetta lærisveinar Brians Wilson, eins og Gunni Þórðar sem er gestur þáttarins, en hann var lykilmaður í vinsælustu hljómsveit Íslands (Hljómum) þegar Beach Boys kepptust um hylli æskunnar í heiminum ásamt Bítlunum.

Brian Wilson segir líka sjálfur frá í þættinum. Hann er á þeirri sköðun eins og Gunni Þórðar og flestir, Pet Sounds besta plata Beach Boys.

Þátturinn var áður á dagskrá í september 2016.

Frumflutt

15. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Rokkland

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í áratugi.

Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Þættir

,