Rokkland

Sigur Rós og Takk 20 ára

Sigur Rós hélt núna í vikunni ferna tónleika í Royal Albert hall í London með London Contemporary Orchestra. Royal Albert hall sem Bítlarnir minnast á í laginu A day in the life

Royal Albert hall sem var tekin í notkun árið 1871 og var vígð af Viktoríu drottningu enda er nafnið komið frá eiginmanninum Albert prins. Og þarna voru strákarnir okkar fjögur kvöld í röð og allt uppselt.

Um þessar mundir er platan þeirra sem heitir Takk líka 20 ára og Rokkland vikunnar er endurunnið upp úr þætti númer 493 frá 4. september 2005 þegar Takk platan var splunkuný.

Frumflutt

5. okt. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Rokkland

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í áratugi.

Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Þættir

,