Rokkland

Kiddi Hjálmur - Baggalútur og Hljóðriti

Undanfarna fjóra sunnudaga hefur Sjónvarpið sýnt okkur bráðskemmtilega þætti um HlJóðrita hljóðverið í Hafnarfirði sem er elsta starfandi hljóðver landsins - stofnað árið 1975 af nokkrum kraftmiklum ungum mönnum af miklum metnaði.

Þættirnir segja sögu Hljóðrita hvernig það skipti sköpum varðandi íslenska tónlist og útgáfu á sínum tíma en þar voru teknar upp allar vinsælustu plöturnar sem komu út á íslandi í áratug eða meira Mannakorn Spilverkið- Grýlunar Villi Vill Gunni Þórðar Magnús Þór Bubbi Megas Þeyr Tappi Tíkarrass Brunaliðið - Grafík jólaplötur og svo framvegis.

En tíminn leið og tímarnir breyttust hljóðverum fjölgaði í borginni og um allt land og Hljóðriti missti flugið af ýmsum ástæðum. Það stóð til um tíma loka alveg, rífa hljóðverið og breyta húsnæðinu í skrifstofur. En sem betur fer gerðist það ekki og það segja bjargvættur Hljóðrita rauðhærður eldhugi frá Keflavík sem heitir Guðmundur Kristinn Jónsson. Hann er búinn ráða ríkjum í Hljóðrita í um 20 ár og Hljóðriti hefur verið hans heimavöllur meira en helming þess tíma sem Hljóðriti hefur verið aktífur.

Í fjórða og síðasta Hljóðritaþættinum kemur vel fram hvað Kiddi eins og hann er kallaður - Kiddi Hjálmur Kiddi í Hljóðrita Kiddi Baggalútur Kiddi í Hljómskálanum hefur haft mikil áhrif á íslenskt tónlistarlíf síðasta aldarfjórðunginn amk, en hann er lykilmaður í Hjálmum Baggalúti Hljómskálanum Hljóðrita Sigurði Guðmundssyni Megasi og Senuþjófunum Memfismafínunni - Ásgeiri Trausta Árnýju Margréti og svo framvegis.

Kiddi er gestur Rokklands þessa vikuna. Rokkland heimsótti hann í Hljóðrita.

Birt

1. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Þættir

,