Hljómsveitin Sycamore Tree á plötu vikunnar á Rás 2. Á plötunni Scream segjast þau Gunni Hilmars og Ágústa Eva sækja innblástur í hljóðheim og umfjöllunarefni tíunda áratugarins og fjalla um hráar tilfinningar. Arnar Guðjónsson stjórnaði upptökum á plötunni. Gunni og Ágústa Eva settust niður með Margréti Erlu Maack og hlustuðu á plötuna í gegn og sögðu frá henni.
Frumflutt
26. maí 2025
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Plata vikunnar
Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.