Stebbi Jak - Líttu í kringum þig
Stebbi Jak mætir til Danna í Plötu vikunnar með breiðskífuna Líttu í kringum þig. Í þættinum fara þeir yfir allt vesenið sem átti sér stað snemma á árinu og breytingarnar sem því fylgdu.
Unnur Elísabet kynnir plötuna Skíthrædd. Í verkinu segir hún sannar sögur úr eigin lífi þar sem húmor og berskjölduð einlægni fara saman í grípandi popptónlist. Margrét Maack settist niður með henni og þær ræddu ferlið að baki plötunni og hvers vegna það getur verið styrkleiki að viðurkenna að maður sé „skíthræddur“.

Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.