
Plata vikunnar
Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Þeir Örn Gauti Jóhannsson og Þorsteinn Gunnar Friðriksson úr hljómsveitinni Hasar líta við hjá Danna í Plötu vikunnar til að kynna fyrstu breiðskífu sveitarinnar, Nýjasta tíska. Í þættinum ræða þeir félagar orkuna og gredduna sem drífur sveitina áfram og hvernig það er að koma inn í tónlistina með leikarabakgrunn í farteskinu. Að spjallinu loknu kynna þeir svo hvert lag fyrir sig áður en platan fær að hljóma í heild sinni.

Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.