BREK - Ný spor í slóð
Þjóðlagasveitin BREK hefur sent frá sér sína aðra breiðskífu, Ný spor í slóð. Sveitin hefur verið starfandi frá árinu 2018 og leikur alþýðuskotna tónlist þar sem einnig má heyra áhrif…
Félagarnir úr Hljómskálanum, þeir Sigtryggur Baldursson (Bogomil Font sjálfur), Bragi Valdimar Skúlason og Guðmundur Kristinn Jónsson (sem mynda Greiningardeildina), hafa tekið höndum saman og gefið út breiðskífuna Haf þú ekki áhyggjur af því. Sveitin varð upphaflega til í sjónvarpssal en hefur undanfarin misseri vaxið úr grasi með lögum á borð við Sjóddu frekar egg, Skítaveður og Gellur eru bestar. Í Plötu vikunnar ræðir Danni við Bogomil Font um fæðingu persónunnar, hvernig samstarfið í sjónvarpinu vatt upp á sig og gleðina og húmorinn í textagerðinni.

Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.