Stebbi Jak - Líttu í kringum þig
Stebbi Jak mætir til Danna í Plötu vikunnar með breiðskífuna Líttu í kringum þig. Í þættinum fara þeir yfir allt vesenið sem átti sér stað snemma á árinu og breytingarnar sem því fylgdu.
Moses Hightower mætir til Danna í Plötu vikunnar til að fagna útgáfu plötunnar Moses og vinir. Á þessari nýju breiðskífu fær sveitin til liðs við sig fjölda góðra gesta og teygir sálar- og popphljóðheim sinn í allar áttir. Í spjallinu er farið yfir hvernig stendur á þessum gestagangi og upplifunina af því að vinna með öðru listafólki í stúdíóinu eftir langan og farsælan feril. Svo hljómar platan auðvitað í heild sinni.

Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.