• 00:00:52Stýrivextir og verðbólga
  • 00:14:54Loreen á Íslandi

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Stýrivextir og verðbólga, Loreen á Íslandi

Eru stýrivextir farnir að valda verðbólgu frekar en að vinna bug á henni? Vextir voru hækkaðir upp í 7,5 prósent í síðustu viku, eins og fólk með húsnæðislán á breytilegum vöxtum er farið að finna rækilega fyrir. Flest bendir til að samdráttur verði í uppbyggingu íbúða á næstunni, sem hætt er við að valdi verðhækkunum og verðbólgu þegar fram í sækir. Kastljós ræðir þetta tvíeggjaða sverð við Katrínu Ólafsdóttur, dósent við Háskólann í Reykjavík, og Runólf Ágústsson, verkefnastjóra Þorpsins - vistfélags.

Tónlistarkonan Loreen, sem sigraði í Eurovison í annað sinn fyrr í mánuðinum, slær ekki slöku við. Hún er komin til Íslands að vinna að nýrri tónlist ásamt Ólafi Arnalds. Kastljós hitti þau að máli.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,