• 00:00:43Bjarni Benediktsson um verðbólgu
  • 00:20:22Pósturinn fækkar afgreiðslustöðum

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Bjarni um verðbólgu, Pósturinn lokar átta starfsstöðvum

Verðbólga mælist yfir tíu prósent og hefur ekki verið hærri í fjórtán ár, þrátt fyrir ítrekaðar stýrivaxtahækkanir. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra boðar aðhald í fjármálaáætlun. Hvað felur það í sér? Og hvað um tekjuhliðina, á að taka upp bankaskatt eins og formaður fjárlaganefndar velti upp? Bjarni er gestur Kastljóss.

Afgreiðslustöðum Póstsins hefur brátt fækkað um helming frá aldamótum. Átta afgreiðslustöðum verður lokað síðar á þessu ári og verða þá 46. Af þeim átta sem loka í september eru tvö pósthús, í Mjódd og Ólafsvík, en einnig verður samningum um póstafgreiðslu sagt upp á sex þéttbýliskjörnum á landsbyggðinni , t.d. í Bolungarvík. Bæjarstjórinn segir breytinguna vera þjónustuskerðingu en forstjóri Póstsins segir aðrar lausnir auka þjónustu. Kastljós kynnti sér málið.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,