• 00:01:06Nýtt fjármögnunartekjulíkan háskólanna
  • 00:13:09Snemmgreiningar briskrabbameins
  • 00:18:31Ást Fedru í Þjóðleikhúsinu

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Breyting á fjármögnun háskóla, briskrabbamein og Ást Fedru

Háskólar munu fá fjármagn frá ríkinu eftir fjölda útskrifaðra nemenda í stað fjölda nemenda í námi, samkvæmt nýju fjárveitingalíkani sem Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra málaflokksins, kynnti í dag. Kastljós rýnir í breytingarnar með Áslaugu Örnu og Ragnhildi Helgadóttur, rektors HR

Briskrabbamein er fjórða algengasta dánarorsök krabbameina á Íslandi og illlæknanlegt. Helstu áhættuþættir þess eru reykingar, mikil áfengisneysla, offita, krónísk brisbólga og erfðabreytingar. Vísindamenn vonast til að erfðaþátturinn geti gefið vísbendingar um hvernig greina megi briskrabbamein nógu snemma til að hægt sé að lækna það.

Margréti Vilhjálmsdóttur þarf ekki að kynna fyrir nokkrum íslenskum leikhússgesti, en hins vegar eru kynni við hana endurnýjuð í leikritinu Ást Fedru sem nú er sýnt í Þjóðleikhúsinu. Margrét flutti nýverið heim eftir áralanga dvöl í Noregi, Kastljós ræddi við hana og Kolfinnu Nikulásdóttur, leikstjóra verksins.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,