• 00:01:07Aðstæður kvenfanga eru slæmar
  • 00:12:58Aðgerðir bankanna í lánamálum Grindvíkinga

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Staða kvenfanga og húsnæðis- og lánamál Grindvíkinga

Aðstæður íslenskra kvenna sem afplána í fangelsi hér á landi eru slæmar. Nauðsynlega meðferð er ekki í boði og hefur Umboðsmaður Alþingis bent á miklar brotalamir þegar kemur að stöðu þessara kvenna. Nái þær ekki bata í fangelsi enda flestar aftur á götunni og eiga sumar ekki afturkvæmt nema þá aftur í fangelsi.

Grindvíkingar hafa kallað eftir því að bankarnir og aðrar lánastofnanir sýni sveigjanleika og komi til móts við Grindvíkinga með því að frysta húsnæðislán þeirra og fella að auki niður vexti og verðbætur á meðan. Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis kallaði bankastjóra fyrir í dag en varaformaður nefndarinnar, Ágúst Bjarni Garðarsson, og Hörður Guðbrandsson, formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur, eru gestir Kastljóss.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,