Menningarannáll Kastljóss
Stiklað á stóru yfir umfjöllunarefni Kastljóss árið 2023.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er gestur Kastljóss í kvöld. Tilefnið er vitaskuld afsögn Bjarna Benediktssonar úr embætti fjármálaráðherra. Í framhaldinu er rætt við þingmennina Bryndísi Haraldsdóttur, Andrés Inga Jónsson og Kristrúnu Frostadóttur.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.