• 00:00:22Sorpa um endurvinnslu drykkjarumbúða
  • 00:11:20Fallegasta íþróttamerkið

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Endurvinnslu ábótavant, merki íþróttafélaga

Endurvinnsla á Íslandi hefur verið í kastljósinu eftir að Heimildin birti frétt fyrir helgi þar sem fram kom að stór hluti drykkjarumbúða er brenndur en ekki endurunninn eins og gefið hefur verið í skyn. Sorpa sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem beðist er afsökunar á því að hafa ekki verið skýrari gagnvart neytendum. En hvernig ætlar Sorpa að bregðast við, hver ber ábyrgðina og þurfa endurvinnslufyrirtæki ekki að endurvinna traust almennings. Rætt við framkvæmdastjóra Sorpu, Jón Viggó Gunnarsson.

Fegurðarsamkeppni íslenskra íþróttamerkja var haldin á dögunum. Vissulega einungis til gamans gert en óvæntur hiti hljóp í leika enda tilfinningar þéttofnar við íþróttir eins og Kastljós komst að á dögunum.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,