• 00:01:17Lífeyrissjóðir um ÍL-sjóð
  • 00:15:26Leiðtogafundur Evrópuráðsins
  • 00:20:03Frumsýnir Fár í Cannes

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

ÍL-sjóður, Evrópuráðsfundur og frumsýning á Cannes

Tuttugu lífeyrissjóðir, sem eru stærstu eigendur skuldabréfa ÍL-sjóðs, segja áform fjármálaráðherra um að slíta sjóðnum brot á stjórnarskrá og mannréttindasáttmála. Fjármálaráðherra hefur sagt að það væri óábyrgt og rangt að komandi kynslóðir beri 150 milljarða byrðar umfram lagalega skyldu ríkisins. Við ræðum stöðu ÍL-sjóðs við fulltrúa lífeyrissjóðanna sem sendu á föstudag inn alvarlegar athugasemdir við áform fjármálaráðherra. Gestur Kastljóss er Davíð Rúdólfsson.

Leiðtogafundur Evrópuráðsins hefst í Hörpu á morgun en um hvað snýst hann eiginlega? Við ræðum við framkvæmdastjóra fundarins, Ragnar Þorvarðarson.

Við fjöllum einnig um efnilegan leikstjóra sem frumsýnir sína fyrstu mynd á kvikmyndahátíðinni í Cannes, Gunni Martinsdóttur Schlüter

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,