• 00:01:05Forsmíðuð hús rísa á methraða
  • 00:10:34Vinátta á vinnustöðum mikilvæg
  • 00:18:11Miðilsfundur Gjörningaklúbbsins

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Forsmíðuð hús í Grindavík, vinir í vinnunni, miðilsfundur með Ásgrími

Í Grindavík er verið að leggja lokahönd á tvær þriggja íbúða raðhúsalengjur en húsin komu fullsmíðuð og innréttuð á steyptum sökkli hingað til lands frá Eistlandi í desember. Hjálmar Vilhjálmsson, eigandi Laufáss sem flytur inn húsin, veðjar á að þessi aðferð verði mikilvæg viðbót við byggingamarkaðinn hér á landi, geti aukið framboð og dregið úr vanda á borð við myglu. Kastljós fylgdist með ferlinu.

Þeim sem eiga náinn vin í vinnunni líður betur, eiga í betri tengslum við yfirmenn og upplifa sig í sterkara teymi en aðrir, samkvæmt rannsóknum Gallup. Við ræðum Auðunn Gunnar Eiríksson og Írisi Björg Birgisdóttur, stjórnenda- og vinnustaðaráðgjafa hjá Gallup.

Miðilsfundur með Ásgrími Jónssyni myndlistarmanni er þungamiðja sýningarinnar Skilaboð að handan sem Gjörningaklúbburinn opnar í Gallerý Port á laugardag. Kastljós kynnti sér þetta dularfulla mál.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,