Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Stjórnmálaástandið, Flokksstjórinn

Það hefur gengið á ýmsu undanfarna daga á stjórnarheimilinu. Ákvörðun matvælaráðherra um að stöðva hvalveiðar hefur heldur betur fallið í grýttan jarðveg hjá þingmönnum og ráðherrum Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Stjórnarflokkarnir eru heldur ekki samstíga í útlendingamálum og þar hefur ágreiningurinn verið að magnast. Margir spyrja sig hvort það séu komnir brestir í þetta stjórnarsamstarf og hvort ríkisstjórnin lifi út kjörtímabilið. Rætt við Ólaf Þ. Harðarson prófessor emeritus í stjórnmálafræði.

Leikritið Flokkstjórinn er sýnt undir berum himni þessi misserin. Verkið byrjar á léttum nótum en tekur alvarlega stefnu, Kastljós kynnti sér málið.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,