• 00:01:17Knattspyrnukonur krefjast jafnréttis
  • 00:13:44Áform Alvotech í uppnámi
  • 00:21:17Ritaðar myndir Jóhanns

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Knattspyrna og jafnrétti, hrun á bréfum í Alvotech,

Leikmenn munu bera fjólublá armbönd í leik meistara meistaranna í knattspyrnu kvenna í kvöld, Valur-Stjarnan, til þess að sýna samstöðu í jafnréttisbarátttu. Knattspyrnukonur hafa undanfarna daga gagnrýnt Íslenskan toppfótbolta fyrir það hve hallaði á konur í nýlegri auglýsingu fyrir deildirnar, en ÍTF eru hagsmunasamtök þeirra félaga sem reka lið í tveimur efstu deildum í knattspyrnu karla og kvenna. Við ræddum við knattspyrnukonurnar Önnu Þorsteinsdóttur og Írisi Dögg Gunnarsdóttur.

Hlutabréf í íslenska lyfjafyrirtækinu Alvotech hafa fallið um þriðjung frá því á fimmtudag þegar tilkynnt var um lyfjastofnun Bandaríkjanna gæti ekki veitt fyrirtækinu markaðsleyfi að svo stöddu fyrir lyfjahliðstæðu gigtarlyfsins Humira. Hörður Ægisson, ritstjóri Innherja kom í Kastljós.

Dularfull skrift, fjöll og leikur með tíma eru höfuðeinkenni myndlistar- og pípulagningamannsins Jóhanns S. Halldórssonar sem sýnir nú verk sín undir yfirskriftinni Ritaðar myndir. Við ræddum við Jóhann.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,