• 00:00:53Mygla á Hlíð
  • 00:08:40Eftirmál Skeggja
  • 00:19:34Silfurljómi í Súðavík

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Mygla í Hlíð, eftirmál Skeggja, Svikull silfurljómi

Mygla á hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri hefur haft víðtæk áhrif á starfsfólk, íbúa og gesti. Deilur um kostnað milli ríkisins og Akureyrjarbæjar virðast hafa dregið viðgerðir á langinn. Kastljós leit við á Hlíð og ræddi við starfsfólk og íbúa.

Útvarpsþættirnir Skeggi eftir Þorsteinn J. vöktu óskipta athygli þegar þeir voru á dagskrá Rásar 1 í haust. Þar var flett ofan af kynferðisbrotum Skegga Ásbjarnarsonar kennara gagnvart nemendum í Laugarnesskóla en þau stóðu áratugum saman, alveg fram á þann áttunda. Í þáttunum stíga þolendur Skeggja fram og segja sögu sína - sumir hverjir í fyrsta sinn. Í gær var svo síðari sjónvarpsþátturinn af tveimur um málið á dagskrá á RÚV, þar sem sjónum var beint að þögninni um málið. Þorsteinn J og Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent í refsirétti og afbrotafræði við lagadeild Háskólans í Reykjavík, ræddu eftirmál þáttanna í Kastljósi.

Samkomuhúsið í Súðavík hefur gegnt margvíslegum hlutverkum gegnum tíðina. Þessa dagana hýsir sýningu á vegum Listasafns ASÍ. Þar sýnir Una Björg Magnúsdóttir sýningu sem nefnist Svikull silfurljómi.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,