Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Fjárhættuspil og prinsessuleikar

Yalið er að íslendingar eyði að minnsta kosti 10-12 milljörðum á ári í veðmál á ólöglegum netsíðum en sumir telja upphæðina umtalsvert hærri. Álíka upphæðum er svo varið í lögleg spil, svo sem happdrætti og veðmálaleiki. Er hægt að loka á þessar síður og hvernig á að taka á spilafíkn. Gestir Kastljóss eru Alma Hafsteins, formaður samtaka áhugafólks um spilafíkn og Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ sem sátu í starfshópi um regluverk um þessa starfsemi. Við ræddum einnig við Sigurð Kára Kristjánsson, formann starfshópsins.

Disneyprinsessur sýna á sér aðrar, dekkri og beinskeyttari hliðar í verki Nóbelsverðlaunaskáldsins Elfriede Jelinek sem var frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins um helgina.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,