• 00:00:42Lindarhvoll
  • 00:15:58Staðan í Úkraínu
  • 00:21:46Hönnunarsafnið sem heimili

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Baráttan um Lindarhvol, innanlandspólitík í Úkraínu, hönnun og heimili

Málefni Lindarhvols verður í aðalhlutverki í kvöld. Hvers vegna vilja stjórnarliðar ekki að greinargerð - eða vinnuskjal, eftir því hver eru spurð - fyrrverandi ríkissendurskoðanda verði birti? Telur stjórnarandstaðan að misfarið hafi verið með ríkiseignir? Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, og Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins eru gestir Kastljóss.

Eina leiðin til þess að knýja fram breytingar í Rússlandi er að Rússar bíði ósigur í Úkraínu, segir dr. Maksym Yakovlyev, forstöðumaður alþjóðastjórnmáladeildar Kíiv-Mohyla háskólans. Hann segir að þótt Zelensky Úkraínuforseti njóti óskoraðs stuðnings heima fyrir sæti ráðgjafar hans og samstarfsfólk meiri gagnrýni. Ingólfur Bjarni fréttamaður var í Kíiv á dögunum og ræddi við Yakovlyev.

Hönnunarsafnið sem heimili er ný fastasýning hjá Hönnunarsafninu. Þar hafa fjórir sýningarstjórar dregið saman um 200 muni úr eigu safnsins og sett upp sem grunnmynd að heimili. Við litum við á Hönnunarsafninu.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,