Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Suðurnesjalína 2, langvinnir verkir tengjast áföllum í æsku, óperan

Við hefjum þáttinn á umræðu um rafmagnsöryggi á Reykjanesskaganum og langvinnum deilum um Suðurnesjalínu 2. Sveitarfélagið Vogar hefur eitt sveitarfélaga á svæðinu hafnað umsókn Landsnets um framkvæmdaleyfi fyrir raflínunni og segir að þörf sé á nýju umhverfismati í ljósi þess að goshrina er hafin á Reykjanesskaga en ákvörðun Landsnets um legu línunnar var tekin fyrir gos. Gunnar Axel Axelsson, bæjarstjóri í Vogum, og Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, eru gestir Kastljóss í kvöld. Við ræðum einnig við Þorvald Þórðarson, prófessor í eldfjallafræði við jarðvísindastofnun Háskóla Íslands.

Við segjum frá nýrri rannsókn sem sýnir fram á að tengsl eru á milli lang­vinnra verkja á full­orðins­ár­um og sál­rænna áfalla í æsku en rannsóknin er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Við ræðum við Vigdísi Hlíf Pálsdóttur ráðgjafa.

Undir lok þáttar fáum við nokkra óperutóna því verkið Madama Butterfly var frumflutt í Íslensku óperunni um helgina.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,