Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Vinnudeila Eflingar og SA, Á ferð með mömmu

Kjaradeila Eflingar og Samtaka atvinnulífsins er í hnút og þegar hefur borið á því að fólk hamstri bensín vegna yfirvofandi verkfalls. Rætt var við Guðmund Inga Guðbrandsson, ráðherra vinnumarkaðsmála, en hann hefur skipað nýjan sáttasemjara í deilunni. Margir velta því nú fyrir sér hvort lagasetning sé yfirvofandi.

Rætt við formann Samtaka ferðaþjónustunnar sem er afar gagnrýnin á verkföllin og segir hana bitna hart á atvinnugrein sem megi ekki við frekari áföllum.

Lögmaður Eflingar, Flóki Ásgeirsson, var í viðtali um stöðuna sem upp er komin eftir úrskurð Landsréttar. Hvaða áhrif hefur hann á embætti ríkissáttasemjara og hvað verður um miðlunartillöguna sem var lögð fram.

Bíltúr um íslenska náttúru að sumarlagi með traustan hund í farþegasæti og líkið af mömmu afturí. Einhvern veginn þannig er upplegg kvikmyndarinnar Á ferð með mömmu sem verður frumsýnd annað kvöld.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,