• 00:00:39Hriplek nýbygging í Borgarnesi
  • 00:06:14Sigurður Ingi um fúsk í framkvæmdum
  • 00:18:53Óhófleg einangrunarvist

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Hriplek nýbygging í Borgarnesi, Sigurður Ingi um fúsk, einangrunarvist

Gallar í nýbyggingum eru alltof tíðir að mati sérfræðinga og staða kaupenda sem sitja eftir í skemmdu húsnæði er veik. Íbúar í nýrri blokk í Borgarnesi hafa staðið í áralöngu stappi við byggjandann þar sem bæði þak og gluggar hripleka. Viðgerðakostnaður hleypur á hundruðum milljóna króna. Kastljós fór á vettvavang og Sigurður Jóhannsson innviðaráðherra kom í myndver og ræddi aðgerðir til að draga úr fúski og styrkja stöðu kaupenda.

Íslensk stjórnvöld ættu að gera það að forgangsverkefni að draga úr beitingu einangrunarvistar í gæsluvarðhaldi, að mati alþjóðaskrifstofu Amnesty Intertnational, sem birti skýrslu um málið í dag. 66 prósent gæsluvarðhaldsfanga hér á landi eru settir í einangrun og dómstólar fallast nær alltaf á beiðni lögreglu um einangrunarvist. Kastljós ræddi við Simon Crowther, lögfræðing hjá Amnesty International.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,