Sögur af landi: Endurlit

16. þáttur

Þáttur frá 27. febrúar 2016: Í þættinum er fjallað um geðheilbrigðismál á Vestfjörðum og Austurlandi. Við ræðum við Davíð Þór Jónsson, héraðsprest á Austurlandi, um þessi mál en hann segir það hafa komið sér í opna skjöldu hvað sálgæsla stór hluti af sínu starfi, við kynnum okkur endurhæfingarstarfsemi á Egilsstöðum og geðræktarmiðstöð á Ísafirði. Þá heyrum við upplifun Stefáns Boga Sveinssonar af því glíma við geðræn veikindi í samfélagi þar sem úrræðu eru lítil og fábreytt.

Viðmælendur: Davíð Þór Jónsson, héraðsprestur á Austurlandi. Stefán Bogi Sveinsson. Linda Pehrsson, framkvæmdastjóri Starfsendurhæfingar Austurlands. Harpa Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Vesturafls.

Dagskrárgerð: Jón Knútur Ásmundsson og Halla Ólafsdóttir.

Umsjón með endurliti: Gígja Hólmgeirsdóttir

Frumflutt

19. sept. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Sögur af landi: Endurlit

Sögur af landi: Endurlit

Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.

Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Þættir

,