67. þáttur
Þáttur frá 19. nóvember 2017: Næring getur verið svo margvísleg. Það þarf að samþætta næringu bæði fyrir líkama og sál og það er að þeim vafningi sem við hugum að í þessum þætti. Innslög…
Þáttur frá 24. september 2017: Í sögum af landi að þessu sinni er fjallað um reynslu. Rætt er við fólk sem hefur margskonar reynslu. Slæma og góða. Hvort sem það er starfsreynsla, reynsla af óhöppum eða mikilli gæfu. Reynslusögur í Sögum af landi, víðsvegar af landinu

Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir