12:42
Hvar er Jón?
7. þáttur: Komum Jóni heim
Hvar er Jón?

Þegar Jón Þröstur Jónsson kom til Dyflinnar í febrúar 2019 stóð til að hann og konan hans myndu verja fríinu sínu í að spila póker og ferðast.

Þess í stað hvarf Jón Þröstur sporlaust.

Nú, sex árum síðar, taka RÚV og RTÉ á Írlandi höndum saman við rannsókn málsins í hlaðvarpinu Where is Jón? sem birtist hér í íslenskri aðlögun.

Where is Jón? eru birt í hlaðvarpsveitum og Spilara RÚV þar sem einnig má finna útgáfu með íslenskum texta.

Þáttaröðin Where is Jón? er skrifuð og framleidd af Önnu Marsibil Clausen og Liam O’Brien. Tónlistin er samin og flutt af Úlfi Eldjárn ásamt Unni Jónsdóttur á selló. Hljóðvinnslu annast Jón Þór Helgason.

Á sama tíma og byrjað var að grafa í leit að hugsanlegum líkamsleifum beið fjölskylda Jóns eftir fréttum. Ef Jón myndi finnast hæfist nýr kafli í sorgarferli þeirra. Þegar lok þessarar þáttaraðar nálgast byrja nýjar ábendingar að berast. Eftir því sem lengra líður biður fjölskylda Jóns um að mál hans verði gert að morðrannsókn í þeirri von að þau fái loks einhver svör.

Gígja Hólmgeirsdóttir sá um handrit og lestur í þessum þætti af Hvar er Jón. Um hljóðvinnslu annaðist Jón Þór Helgason.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 37 mín.
,