Tónhjólið
Gamalt og nýlegt: Telemann og Bach í nýjum búningi, Anna, Eastman og Emahoy Tsege Mariam Gebru
Í Tónhjólinu beinum við sjónum okkar að nýrri nálgun á tónlist barokktímans auk þess að heyra tónlist eftir Önnu Þorvaldsdóttur, Julius Eastman og Emahoy Tsegue Maryam Gebru.
Tónlistin í þættinum:
Fantasía fyrir fiðlu eftir Telemann í a-moll. Rachel Podger flytur.
Fantasía fyrir fiðlu nr. 1 í B-dúr eftir Telemann, Aisha Orazbayeva flytur eigin útsetningu.
Af Bach Reworks-plötum Víkings H. Ólafssonar:
Prelúdía í G-dúr úr sellósvítu nr. 1 eftir Jóhann Sebastian Bach
For Jóhann
Úr Velstillta píanói J.S. Bach:
Prelúdía og fúga í a-moll,
Prelúdía og fúga í Fís-dúr
og
Prelúdía og fúga í Cís-dúr -- Mathias Halvorsen flytur eigin útsetningar á píanó.
Shades of Silence eftir Önnu Þorvaldsdóttur. Nordic Affect flytur.
Eftir Julius Eastman:
Prime
Buddha - Field
Wild Up hópurinn flytur.
Píanóverk eftir og í flutningi Emahoy Tsegue Maryam Gebru:
The Homeless Wanderer og Mad Man’s Laughter