Tónhjólið

Draumsýn. Jóna G Kolbrúnardóttir og Ástríður Alda Sigurðardóttir

Jóna G. Kolbrúnardóttir sópransöngkona og Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari flytja ljóðatónlist eftir Clöru Schumann (1819-1896) og Franz Schubert (1797-1828) á tónleikum í Hannesarholti. Verkefnavalið samanstendur af völdum ljóðum eftir F. Schubert og flokkunum Opus 12 og 13 eftir C. Schumann. Í ljóðunum er náttúran í fyrirrúmi og endurspeglar ólíkar birtingarmyndir ástarinnar, margslungnar tilfinningar og drauma mannsins.

F. Schubert lést aðeins 31 árs gamall. Þrátt fyrir stutta ævi var Schubert ótrúlega afkastamikill. Hann samdi yfir 600 söngljóð (Lieder) og hafði áhrif á fjölda tónskálda, þar á meðal Clöru Schumann, Robert Schumann, Johannes Brahms, Richard Strauss og fleiri. Schubert er talinn brautryðjandi þýska söngljóðsins (Lied). Hann bjó yfir einstökum hæfileikum til tjá hinar dýpstu tilfinningar ljóðanna í fallegum og flæðandi laglínum. Í söngljóðum Schuberts gildir jafnræði milli söngraddarinnar og tóna píanósins, sem dýpka skilning okkar á ljóðinu í sameiningu.

C. Schumann skilur einnig eftir sig fjöldann allan af tónsmíðum, þrátt fyrir hafa nánast hætt semja eftir hún giftist tónskáldinu Robert Schumann. En líkt og söngljóð Schuberts þá

fléttar Schumann píanóleikinn og söngröddina einstaklega vel saman. Línurnar mynda eina heild og tilfinningar ljóðsins komast fullkomnlega til skila. Hún var eftirsóttur og virtúósískur

píanóleikari í sinni tíð, og greina snilli hennar í píanóparti söngljóðanna.

Franz Schubert

Seligkeit L. H. Chr. Hölty

Clara Schumann Op. 13

1. Ich stand in dunklen Träumen Heinrich Heine

2. Sie liebten sich beide Heinrich Heine

3. Die Liebe sass als Nachtigall Emanuel Geibel

4. Der Mond kommt still gegangen Emanuel Geibel

5. Ich hab’ in deinem Auge Friedrich Rückert

6. Die stille Lotusblume Emanuel Geibel

Franz Schubert

Frühlingsglaube L. Uhland

Im Freien J. G. Seidl

Fischerweise Franz v. Schlechta

Im Abendrot Carl Lappe

Sprache der Liebe Aug. Wilh. Schlegel

Gretchen am Spinnrade úr “Faust” Goethe

Clara Schumann Op. 12

1. Er ist gekommen in Sturm und Regen F. Rückert

2. Liebst du um Schönheit F. Rückert

3. Warum willst du and’re fragen F. Rückert

Franz Schubert

Nacht und Träume Matthäus v. Collin

An die Musik

Einnig heyrist í þættinum:

Fuglar í búri - Jón Laxdal/Hannes Hafstein

Guðmundur Jónsson syngur og Ólafur V Albertsson leikur á píano.

Af minnistæðu fólki - Minning Bernharðs Stefánssonar um Hannes Hafstein úr þætti Gunnars Stefánssonar - Af minnistæðu fólki(2011)

Við Valagilsá - Árni Thorsteinsson/Hannes Hafstein

Guðmundur Jónsson, söng og Fritz Weisshappel lék á píanó í hljóðritun ríkisútvarpsins frá árinu 1954.

Landsýn, kvæði eftir Hannes Hafstein. Sigríður Schiöth les.

Úr útsæ rísa Íslands fjöll - Páll Ísólfsson/ Davíð Stefánsson Árnesingakórinn í Reykjavík - undir stj Þuríðar Pálsdóttur

Frumflutt

18. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Tónhjólið

Tónhjólið

Tónlist úr ýmsum áttum. Nýjar hljóðritanir Rásar 1 í bland við nýjar plötur íslenskrar og erlendrar tónlistar.

Þættir

,