Tónhjólið
Strengir á opnu svæði
Í forgrunni í þættinum er strengjaleikur þar sem flytjendur eiga það sameiginlegt að leggja sitt af mörkum til að þenja út hljóðheim hljóðfæranna á sama tíma og þeir standa traustum fótum í hefðinni.
Tónlistin sem hljómar í þættinum er eftir Hildi Guðnadóttur, barokktónskáldið Johann Paul von Westhoff, Keir GoGwilt og Johnny Chang, Judith Hamann og Amy Cimini.
Umsjón hefur Berglind María Tómasdóttir
Verk sem hljóma í þættinum:
Hildur Guðnadóttir, platan Where To From:
Stimm
Erindi
Steps Out Loud
Make Space
Over There
I Hold Close
Melody of Not Knowing
All Along
Fólk fær andlit
Johann Paul von Westhoff - Partíta í d-moll í flutningi Keir GoGwilt, fiðluleikara, af plötunni re: d:
Allemande
Courante
Sarabande
Gigue
Keir Gogwilt og Johnny Chang, fiðluleikarar af plötunni hope lies fallow:
Hope to adjust
Cantigas: Hildegard
Beatific creatures
Judith Hamann, sellóleikari af plötunni Music for Cello and Humming:
Humming Suite, 1.kafli
Amy Cimini, víóluleikari af plötunni See You When I Get There:
Anyone’s Song