Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús
Eftir áralanga ásælni Bandaríkjaforseta í Grænland og hótanir um að hertaka landið og innlima hefur verið undirritaður samningur á milli Bandaríkjanna, Danmerkur og Grænlands um varnir…
Gestur Boga Ágústssonar í Heimsglugga vikunnar var Albert Jónsson, sérfræðingur í öryggis- og utanríkismálum og fyrrverandi sendiherra. Hann telur að litlar líkur séu á að hægt verði að gera friðarsamninga á milli Rússa og Úkraínumanna. Verði Trump Bandaríkjaforseti að ósk sinni um að stríðinu ljúki verði það líklega með vopnahléi. Albert bendir á að friðarsamningar hafi aldrei verið gerðir á milli Norður- og Suður-Kóreu en þar hafi verið vopnahlé í meira en 70 ár.

Bogi Ágústsson ræðir um erlend málefni