Heimsglugginn

Þýska stjórnin fallinn, Trump endurkjörinn

Þórunn Elísabet Bogadóttir og Guðrún Hálfdánardóttir ræddu við Boga Ágústsson um fall þýsku stjórnarinnar. Þar sauð upp úr eftir deilur um ríkisútgjöld á milli stjórnarflokkanna. Frjálsir demókratar vildu draga úr útgjöldum til félagsmála og grænna verkefna til loka gati í ríkisbúskapnum. Jafnaðarmenn og Græningjar gátu ekki sætt sig við þau áform og Olaf Scholz kanslari rak Christian Lindner, fjármálaráðherra og leiðtoga Frjálsra demókrata, úr embætti. Stjórnin situr áfram sem minnihlutastjórn en búist er við kosningum á nýju ári.

Ýmsir fréttaskýrendur telja fall þýsku stjórnarinnar koma á afar óheppilegum tíma því Evrópusambandið þurfi á öflugri forystu halda þegar viðbúið Donald Trump dragi úr stuðningi Bandaríkjanna við Úkraínu og leggi minni áherslu á samstarf NATO-ríkja og hyggist setja verndartolla á innflutning til Bandaríkjanna.

Frumflutt

7. nóv. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimsglugginn

Heimsglugginn

Bogi Ágústsson ræðir um heimsmálin í þættinum Morgunvaktin á Rás 1 á hverjum fimmtudegi.

Þættir

,