Heimsglugginn

Árásir Rússa, danskir bændur og bresk og sænsk stjórnmál

Þórunn Elísabet Bogadóttir, Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson fóru víða í Heimsglugga vikunnar á Morgunvaktinni á Rás 1.

Þau ræddu árásir Rússa í Leipzig og fleiri aðgerðir þeirra og möguleg viðbrögð Vesturlanda. Þá ræddu þau mótmæli danskra bænda gegn nýjum lögum sem takmarka áburðarnotkun vegna áhrifa sem köfnunarefni í áburðinum hefur á lífríki hafsins. Sjórinn við strendur Danmerkur er svo súrefnislaus hann er nánast lífvana, fiskar, krabbar og aðrar lífverur í hafinu hafa hreinlega drepist eða flúið.

Þá var rætt um fyrsta fyrirspurnartíma Andy Burnhams sem forsætisráðherra Bretlands. Í lokin var greint frá stöðunni í kosningabaráttunni í Svíþjóð þar sem spenna hefur aukist eftir bilið á milli stjórnar og stjórnarandstöðu minnkaði mikið.

Birt

3. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Heimsglugginn

Bogi Ágústsson ræðir um erlend málefni

Þættir

,