Kosningar í fjórum ríkjum
Bogi Ágústsson ræddi við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur um nýafstaðnar kosningar í Brasilíu, Serbíu og Ísrael. Þá ræddu þau einnig horfurnar fyrir kosningarnar…
Aukakosningar eru í Clacton-kjördæminu á Englandi í dag þar sem kosið er til breska þingsins. Efnt var til kosninganna þar sem Nigel Farage leiðtogi Reform, Umbótaflokksins, sagði af sér þingmennsku. Hann býður sig aftur fram en enginn stóru flokkanna býður sig fram því þeir telja afsögn og framboð Farage sýndarmennsku. Því hefur helsti keppinauturinn verið Count Binface, Fötufés greifi. Hann kemur ætíð fram í búningi með ruslatunnulíki á höfðinu.
Count Binface hefur verið nefndur Fötufés, Ruslgrímur, Tunnuhaus og Tunnufés í íslenskum fjölmiðlum. Við heyrðum í Heimsglugganum nokkur brot úr viðtali við hann sem Alastair Campbell og Rory Stewart tóku við hann í þætti sínum The rest is politics.

Bogi Ágústsson ræðir um erlend málefni.