Kosningar í fjórum ríkjum
Bogi Ágústsson ræddi við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur um nýafstaðnar kosningar í Brasilíu, Serbíu og Ísrael. Þá ræddu þau einnig horfurnar fyrir kosningarnar…
Hjálmar Waag Árnason var gestur Heimsgluggans og ræddi stjórnmál í Færeyjum en frændur okkar og frænkur ganga til kosninga síðar í mars. Hjálmar á ættir að rekja til Færeyja og er þar öllum hnútum kunnugur. Hann telur líklegt að hægri stjórn taki við eftir kosningar en Jafnaðarmenn hafa verið í stjórnarforystu síðustu ár.
Þá var rætt um mismunandi yfirlýsingar bandarískra ráðamanna um ástæður árása á Íran þar sem ýmsar skýringar hafa verið á lofti.

Bogi Ágústsson ræðir um erlend málefni.