Heimsglugginn

Milljarður Indverja gengur að kjörborðinu

Jón Ormur Halldórsson, doktor í stjórnmálafræði, var gestur Heimsgluggans. Jón Ormur þekkir vel til á Indlandi. Hann er fyrrverandi háskólakennari og höfundur fjölda greina og bóka um alþjóðamál og margra mati mati einn skarpasti greinandi alþjóðastjórnmála á Íslandi. Bogi Ágústsson ræddi við hann um þingkosningar sem hefjast á Indlandi í næstu viku og standa fram í maí. Jón Ormur segir það mikið verk halda kosningar þar sem milljarður manna er á kjörskrá. Lítill vafi leikur á Narendra Modi forsætisráðherra og flokkur hans BJP vinni sigur í kosningunum. Modi hefur á tíu ára valdatíð sinni þrengt mjög dómstólum og fjölmiðlum, komið stuðningsmönnum sínum fyrir í lykilembættum og ofsótt pólitíska andstæðinga. Er svo komið margir efast um hægt telja Indland lengur í hópi lýðræðisríkja. Þannig spyr franska tímaritið Le Monde Diplomatique á forsíðu aprílheftisins hvort Indland aðeins lýðræðisríki nafninu til.

Frumflutt

11. apríl 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimsglugginn

Heimsglugginn

Bogi Ágústsson ræðir um heimsmálin í þættinum Morgunvaktin á Rás 1 á hverjum fimmtudegi.

Þættir

,