Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús
Eftir áralanga ásælni Bandaríkjaforseta í Grænland og hótanir um að hertaka landið og innlima hefur verið undirritaður samningur á milli Bandaríkjanna, Danmerkur og Grænlands um varnir…
Hallgrímur Indriðason fréttamaður fylgdist með þingkosningunum í Danmörku á þriðjudag og Bogi Ágústsson ræddi við hann í Heimsglugganum um stöðuna í dönskum stjórnmálum. Fyrst ræddi Bogi þó kosningarnar í Færeyjum sem fram fara í dag og nýja skýrslu, ,,State of the Nordic Region“, sem inniheldur mikinn fróðleik um Norðurlönd.
State of the Nordic Region hefur verið gefin út annað hvert ár frá 1981. Skýrslan sýnir þróun og stefnur á Norðurlöndum á sviðum eins og lýðfræði, vinnumarkaði og efnahagsmálum. Skýrslan er unnin af Nordregio sem er rannsóknastofnun Norrænu ráðherranefndarinnar.

Bogi Ágústsson ræðir um erlend málefni