• 00:02:52Kúnstpása - Sæunn Gísladóttir
  • 00:13:53Alþjóðlegu Booker-verðlaunin og Tímaskjól
  • 00:32:38Gildi Bókmenntaverðlauna

Bara bækur

Kúnstpása, Tímaskjól, alþjóðlegu Booker og gildi bókmenntaverðlauna

Við hringjum norður á Siglufjörð í Sæunni Gísladóttur sem gaf út fyrr á þessu ári skáldsöguna Kúnstpásu. Þetta er saga tveggja kvenna frá mismunandi tímum, 2020 og 1930. Þetta er sveitarómans, ástarsaga mætti segja, bók um standa frammi fyrir áskorunum. Og áskoranirnar eru alltaf þær sömu virðist vera. Tímarnir breytast en mennirnir ekki með. Sæunn segir betur frá.

Og talandi um tímann, þann mikla stýrimann í lífi okkar. Sjálf klukkan eða hvernig sem við sjáum tímann fyrir okkur. Hann þeytist áfram í óvissu en býr um leið til vissu um hið liðna. Er hættulegt rómantísera hið liðna? Það er hægt vopnvæða nostalgíu. Verðlaunaskáldsagan Tímaskjól var koma út á íslensku eftir búlgarska rithöfundinn Georgei Gospodinov. Þetta er frábær skáldsaga sem hlaut alþjóðlegu Booker verðlaunin 2023. Þetta eru djúpkafarabókmenntir sem kafa inn kjarna mennskunnar, úr hverju erum við, hvenær erum við, hvað eru minningar? Þetta er saga um nostalgíu, gleymsku og mörgu leyti vísindaskáldsaga í anda Kurt Vonnegut sem spyr stórra spurninga. Heyrum brot og ræðum við þýðendurna, Vesku A. Jónsdóttur og Zophonías O. Jónsson sem þýddu saman úr búlgörsku.

Í lokin veltum við fyrir okkur bókmenntaverðlaununum. Í Skáldu bókabúð var haldið lítið málþing með þremur erindum. Fáum tvo þeirra hingað í hljóðstofu og heyrum aðeins hvað þeir voru pæla, það eru þeir Jón Yngvi Jóhannsson og Ægir Þór Jänkhe. Þriðja erindið flutti Soffía Auður Birgisdóttir.

Viðmælendur: Sæunn Gísladóttir, Veska A. Jónsdóttir, Zophonías O. Jónsson, Ægir Þór Jänkhe og Jón Yngvi Jóhannsson. Tómas Ævar Ólafsson las úr Tímaskjóli.

Umsjón: Jóhannes Ólafsson

Frumflutt

24. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Bara bækur

Bara bækur

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.

Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

Þættir

,