11. desember 2022
Sigríður Hagalín Björnsdóttir hefur umsjón með þættinum að þessu sinni. Fyrst til að ræða mál líðandi stundar koma þau Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður á Stundinni, Diljá Mist Einarsdóttir…
Sigríður Hagalín Björnsdóttir hefur umsjón með Silfrinu í dag. Fyrst ræðir hún við Sigríði Björk Guðjónsdóttur ríkislögreglustjóra. Því næst til að ræða fréttir vikunnar koma þau Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar, Guðbjörg Kristmannsdóttir formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og Sandra Sigurðardóttir landsliðsmarkvörður. Að lokum er rætt við Bjarna Bjarnason forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur.

Egill Helgason og Sigríður Hagalín Björnsdóttir fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.