
Silfrið
Egill Helgason og Sigríður Hagalín Björnsdóttir fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir er umsjónarmaður Silfursins í dag. Í fyrsta hluta þáttar koma þau Silja Bára Ómarsdóttir prófessor í stjórnmálafræði, Jón Ólafsson sérfræðingur í málefnum Rússlands, Baldur Þórhallsson prófessor í stjórnmálafræði, Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Sigtryggur Magnason aðstoðarmaður innviðaráðherra. Í öðrum hluta er rætt við Pál Einarsson jarðeðslisfræðing og Kristinn Harðarson, framkvæmdastjóra framleiðslu hjá HS Orku, um jarðhræringar á Reykjanesskaga. Að lokum er svo rætt við Lilju Dögg Alfreðsdóttur ráðherra menningarmála, um nýlega ferð til Bandaríkjanna þar sem fundað var með stórfyrirtækjum um íslenska tungu í tækniheimi.

Egill Helgason og Sigríður Hagalín Björnsdóttir fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.