
Silfrið
Egill Helgason og Sigríður Hagalín Björnsdóttir fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Sigríður Hagalín Björsdóttir hefur umsjón með Silfri dagsins. Í fyrsta hluta koma til hennar til að ræða fréttir vikunnar þau Guðrún Hálfdánardóttir dagskrárgerðarmaður á Rás 1, Karen Kjartansdóttir almannatengill, Gísli Freyr Valdórsson viðskiptaritstjóri Morgunblaðsins og
Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur.
Næstu gestir eru þau Gylfi Magnússon hagfræðiprófessor við HÍ og Sigrún Davíðsdóttir fréttaskýrandi í London og munu þau fjalla um efnahagsástandið í Bretlandi.
Að lokum er rætt við Artur Gruszczak, prófessor í félagsvísindum og öryggismálasérfræðingur við Jagiellonian háskólann í Krakow í Póllandi, um breytta stöðu Atlantshafsbandalagsins.

Egill Helgason og Sigríður Hagalín Björnsdóttir fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.