11. desember 2022
Sigríður Hagalín Björnsdóttir hefur umsjón með þættinum að þessu sinni. Fyrst til að ræða mál líðandi stundar koma þau Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður á Stundinni, Diljá Mist Einarsdóttir…
Silfrið hefur göngu sína aftur á nýju ári. Egill Helgason hefur umsjón með þættinum . Í fyrri hluta eru gestir þau Björn Ingi Hrafnsson blaðamaður, Friðjón R. Friðjónsson almannatengill, Karen Kjartansdóttir almannatengill og Björn Þorláksson blaðamaður. Þau munu fara yfir málefni á vettvangi dagsins og fréttir vikunnar. Í síðari hluta er Hilmar Þór Hilmarsson prófessor við viðskipta- og raunvísindasvið Háskólans á Akureyri gestur Egils. Þeir ræða um málefni Úkraínu, Rússlands og NATO.

Egill Helgason og Sigríður Hagalín Björnsdóttir fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.