
Síðdegisútvarpið
Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Áfengis- og tókbaksverslun ríkisins býður í dag upp á heimsendingu á vörum úr vefbúð. Heimsendingar verða ekki afgreiddar samdægurs en áætlaður afhendingartími er að jafnaði einn til þrír dagar. Sitt sýnist hverjum um þessar breytingar, sumir fagna þeim eflaust en aðrir hafa bent á að þetta samræmist ekki þeirri stefnu að takmarka aðgengi að áfengi. Til að ræða þetta nánar komu þau Ragna Sigurðardóttir, þingkona Samfylkingarinnar, og Sigurður Örn Hilmarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Nú eru afsláttardagar á netinu að tröllríða öllu. Í boði eru tilboð sem virðast oft vera erfitt að hafna. Við vitum að góð vísa er aldrei of oft kveðin og ætlum því að brýna fyrir okkur öllum að fara varlega þegar kemur að netverslun. Ingólfur Andri Ágústsson, sérfræðingur hjá OK, fór vel yfir gátlistann með okkur.
Alþingi samþykkti á mánudag viðamiklar breytingar á barnaverndarlögum. Velferðarnefnd náði samkomulagi um að flýta endurskoðun á fósturkaflanum í lögunum. En í hverju felast þessar breytingar? Guðlaugur Kristmundsson formaður Félags Fósturforeldra kíkti til okkar og fór yfir þessi mál með okkur.
Hvaða þýðingu hefur menntun á tímum gervigreindar? Ef við gefum okkur það að meginástæðan fyrir spurn eftir menntun sé að auka tekjur eða bæta samkeppnisaðstöðu á vinnumarkaði þá hlýtur tækni að vera ákveðin ógn við veldi menntakerfisins. Atli Harðarson, prófessor emeritus við menntavísindasvið Háskóla Íslands, hefur mikið velt þessu fyrir sér. Hann kom til okkar.
Fréttahrafninn er ný vefsíða sem hjálpar fréttaþyrstum að fylgjast með nýjustu fréttum. Fréttahrafninn safnar saman nýjustu fyrirsögnum íslenskra fréttamiðla á einn stað. Hallur Ólafur Agnarsson er maðurinn á bakvið síðuna. Hann kom til okkar.
Annað kvöld klukkan sjö býðst einhleypu fólki á aldrinum 40-60 ára að mæta á Hraðstefnumót í Bíó Paradís. Laufey Soffía skipuleggjandi þess kíkti til okkar og sagði okkur hvernig þetta fer fram.

Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.