Síðdegisútvarpið

Lyfjaskortur, uppsjávarskip losnar frá bryggju og nýr Bond, James Bond

Estrógenlyfið Lenzetto var um tíma ófáanlegt á landinu, en það er lyf sem ætlað er til meðferðar við einkennum estrógenskorts eftir tíðahvörf kvenna. Svo virðist sem eftirspurnin hafi verið töluvert meiri en framleiðslan en á sunnudag var greint frá því á mbl að lyfið væri væntanlegt aftur um áramótin, og miðaldra konur gætu tekið gleði sína á ný. En hvaða lyf er þetta og hvað veldur þessari eftirspurn? Matthildur Sigurðardóttir formaður Félags íslenskra fæðinga- og kvensjúkdómalækna kom til okkar.

Uppsjávarskipið Vilhelm Þorsteinsson EA-11 losnaði frá bryggju á Krossanesi á Akureyri í óveðrinu á föstudag þegar landfestar slitnuðu. Með útsjónasemi tókst að koma áhöfn um borð til að ná stjórn á skipinu og koma því örugglega að Oddeyrarbryggju. Jóhann Freyr Jónsson, starfsmaður útgerðarsviðs Samherja, var á línunni og sagði okkur betur frá atburðarásinni á föstudag.

Spánarspjallið var á sínum stað. Jóhann Hlíðar var á línunni og sagði okkur meðal annars frá kosningum og gervigreind.

Nýsköpunarverðlaun Samorku verða afhent í sjötta sinn fimmtudaginn 19. nóvember kl. 15 í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur. Verðlaunin beina sjónum að nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum sem þróa lausnir á sviði orku- og veitumála. Hafdís Helga Helgadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku og Arna Pálsdóttir, doktor í efnaverkfræði, litu við.

Þann 15. nóvember 1978 brotlenti flugvél Flugleiða, Leifur Eiríksson, við flugvöllinn í Kólombó á Sri Lanka með 262 manns innanborðs. Flugslysið er það mannskæðasta í íslenskri flugsögu og var á þeim tíma fjórða mesta flugslys allra tíma. Af þeim þrettán Íslendingum sem voru um borð komust fimm lífs af. Nú stefnir á fjalir Kaldalóns í Hörpu heimildarleikverk um slysið þar sem eftirlifendur segja sögu sína í leikriti sem nefnist útkall. Leikgerðin er unnin af Fjölni Gíslasyni leikara og Magnúsi Thorlacius leikstjóra. Hann kíkti til okkar ásamt Berglindi Höllu sem leikur í verkinu.

Það bárust risatíðindi úr kvikmyndageiranum í gær. Robert Pattinson verður næsti James Bond. Sitt sýnist hverjum, sumir fagna á meðan aðrir syrgja. Tómas Valgeirsson úr hlaðvarpinu Bíófíklar og Atli Sigurjónsson fóru yfir þessi tíðindi með okkur.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Síðdegisútvarpið

Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,